Það er nú ekki mikið að frétta þessa dagana annað en kuldi og kuldi
og mikill kuldi, svona ef það fór einhvað framhjá ykkur.
Ég fór til spákonu í gær sem að var mjög fær að mínu mati nema hvað
að hún nefnir við mig að ég sé með hest í húsinu sem er rosalega
efnilegur og á eftir að vinna mikið af keppnum. Nú þar sem ég er
smá hjátrúarfull þá þori ég varla að selja einn einasta hest hehe.
Sem er mjög bjánalegt. En ég meina hvað á maður að gera. Annars
held ég að það séu aðeins 2 af þeim sem koma til greina en hvor og
báðir eru til sölu. Annars á maður ekki að trúa öllu og allt það en
samt erfitt að hunsa þetta.
Snót hefur ákveðið að skipta um ham. Hún hætti að vera krúttilega
litla dúllan sem að dólar á eftir manni á einhverjum gangi Nei hún
heldur sko ekki, núna er hún vinkilhágeng á tölti með urrandi vilja
sem hún veit ekki alveg hvað hún á að gera við þannig að stundum
heypur hún 100 metra, ekkert alvarlega en samt gerir það. Hún ákvað
fyrst hún fengi ekki að lulla þá væri bara ágætt að tölta
almennilega. Algjör bjáni. En flottur bjáni.
Lúsífer er alveg meiriháttar, ég elska hann útaf lífinu, reyndar er
slæmt að hann er ennþá á sumarskeifum og ég þarf að ríða honum inní
reiðhöll en hann er bara að verða svo góður, nema í gær en það var
ekki honum að kenna helduru ekki að það hafi komið fáviti inní
reiðhöllina í Gust á opnum tíma og með hund með sér. Ég lét hann
vita að hesturinn minn sé frekar sjónhræddur og þyldi ekki hundinn,
nei þá setur hann hann í áhorfendastúkuna, eins og það sé betra.
Svo tuðaði ég svo mikið að hann setti hann út þar gelti hundurinn
eins og honum væri borgað fyrir það þannig að kallinn tók hann bara
aftur inn og hafði hann með sér á gólfinu. Ég meina er ekki í lagi
getur fólk ekki skilið hundinn eftir inná kaffistofu rétt á meðan
að það fer í reiðhöllina, það voru t.d. krakkar þar líka sem voru
ekki mikið vön og ekki hafði hann áhyggjur af því. Hata svona
sjálfelskt fólk. En þeir sem lenda í þessu eiga auðvitað að vera
tuðandi kellingar eins og ég og láta fólk heyra það, þá má stundum
vera leiðinlegur.
Tanja er búin að vera mjög dugleg að koma uppeftir að sinna Kötlu
og hún Katla lítur mjög vel út hjá henni, er grönn og fín og með
fínan gang og skemmtilegan vilja.
Jæja best að hætta að tuða í bili er eiginlega orðin pirruð á
hundakallinum aftur þannig að ég ætla að róa mig niður.